RHák fyrir EKG

Mánudaginn 02. apríl 2001, kl. 15:03:17 (6211)

2001-04-02 15:03:17# 126. lþ. 103.94 fundur 443#B RHák fyrir EKG#, Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 103. fundur, 126. lþ.

[15:03]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að 1. varaþingmaður Sjálfstfl. í Vestf., Ragnheiður Hákonardóttir bæjarfulltrúi, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Einar K. Guðfinnsson, 1. þm. Vestf.``

Ragnheiður Hákonardóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.