Landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson):
Hæstv. forseti. Ég vil í upphafi segja --- ég hef auðvitað verið borinn ákveðnum sökum --- að ég hef lýst því yfir að það er vilji í stjórnarflokkunum báðum til að endurskoða þetta kerfi. Vinna var sett í gang í því skyni og er hún í gangi. Ég get sagt að við höfum tafist á okkar leið. Ægileg vandamál hafa hrúgast á lítið ráðuneyti. Ég nefni bara gin- og klaufaveiki, kúariðu o.s.frv. Mannaflinn er upptekinn við slík störf þannig að það hefur tafist.
Ég vona að vinnan sem hefur verið í gangi, í fullu samráði við ríkisstjórnina, um að skoða nýjar leiðir, beri árangur og þá ekkert síður að horfið verði frá tollafyrirkomulaginu sem var niðurstaðan á sínum tíma og að frekar verði tekinn upp framleiðslustuðningur við okkar frábæru framleiðendur á grænu vörunum, þ.e. horfið frá núverandi kerfi. Það er ódýrt og skilar bændum betri stöðu. Meiri sátt verður á markaðnum. Það skilar ódýrari vöru til neytenda og lægra verði til lengri tíma er litið. Þetta er sú stefna sem ég vona að verði í höfn á allra næstu vikum og tala ég nú í fyllstu alvöru eins og jafnan áður. Ég vona að þetta líti sem fyrst dagsins ljós.
Ég vil hins vegar segja við hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur, fulltrúa vinstri grænna í þessari umræðu, að ég veit að sá þingflokkur álítur ekkert stefnu nema sagt sé nei. Hér var sagt að laxeldisstefnan væri ekki stefna. Heilu fjörðunum var lokað til að sýna að þar væri friður. Við höfum falið bændunum skógræktina og félagasamtökum fólksins. Það kallar hv. þm. ekki stefnu. Svona málflutningur er náttúrlega út í hött.
Ég vona að ég geti innan tíðar tilkynnt niðurstöðu úr þeirri nefnd sem er að störfum á vegum landbrn. í fullri sátt beggja stjórnarflokkanna í ríkisstjórn um nýtt kerfi, skilvirkara og betra.