Pétur H. Blöndal:
Herra forseti. Við ræðum frv. til laga um breyting á lögum um virðisaukaskatt þar sem gert er ráð fyrir því að endurgreiða 2/3 af virðisaukaskatti á ákveðnum bílum með ákveðnar aflvélar á ákveðnum tíma. Þetta minnir því miður töluvert mikið á tilskipanir fyrri tíma. Hinn alvaldi kóngur sá að eitthvað gekk illa, einhver atvinnurekstur gekk ekki og þá var brugðið á það ráð að lækka á honum tolla og sjá hvort hann hresstist ekki.
Fjmrn. hefur komist að því að hópferðabifreiðafloti landsmanna er orðinn óeðlilega gamall og það þykir fjmrn. slæmt og ákveður að lækka tolla á þeim flota svo hann megi yngjast og hressast. Það sem gerist þegar skattar eru orðnir of háir, herra forseti, er að viðkomandi atvinnurekstur annaðhvort deyr drottni sínum, flytur til útlanda eða fer undir yfirborðið og myndar skattsvik. Og þar sem erfitt er að smygla hingað rútum og menn geta ekki náð í þær til útlanda eins og þeir gera sem fara í verslunarferðir til Glasgow, þá deyr atvinnureksturinn eða rúturnar verða afskaplega gamlar. Það skyldi þó ekki vera, herra forseti, og það er spurning mín til hæstv. fjmrh., hvort virðisaukaskatturinn sé hreinlega ekki of hár, bara almennt á allt atvinnulífið. Hvort allt atvinnulífið, sérstaklega ferðaþjónustan mundi ekki hressast heilmikið ef skatturinn yrði lækkaður því það er ekki bara á rútum sem virðisaukaskattur er hár og niðurdrepandi heldur líka á málsverði sem túristar kaupa og alls konar þjónustu í landi en hún fer náttúrlega eins og kunnugt er stundum undir yfirborðið og verður svört og þar er það hægt, en ekki með rúturnar.
Ég vil því leggja til að í staðinn fyrir að vera með svona tilskipanastíl þar sem hæstv. fjmrh. gefur undanþágu hér og þar, sem hefur reyndar ekki verið mikið um sem betur fer, verði skoðað hvort ekki sé ástæða til að kanna það a.m.k. að lækka virðisaukaskattinn og sjá hvað gerðist. Sérstaklega ef það skyldi nú gerast að þenslan minnkaði og jafnvel kæmi einhver smásnertur af kreppu, þá mættu menn gjarnan hafa það í huga að lækka virðisaukaskattinn til a0ð reyna að gefa atvinnulífinu nýja vítamínsprautu.
En hér er lagt til að ákveðnar bifreiðir sem eru með ákveðnum vélum sem eru fjmrn. þóknanlegar borgi rúmlega 8% virðisaukaskatt í staðinn fyrir 24% á ákveðnu tímabili, sem verður náttúrlega til þess að allur flotinn verður endurnýjaður á þessu tímabili fram til ársins 2003 og ég reikna jafnvel með því að tekjur ríkissjóðs muni vaxa. Það verði þvílíkur innflutningur að 8% muni gefa ríkissjóði meiri tekjur en 24% hingað til.