Jón Bjarnason (andsvar):
Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að árétta þessi sjónarmið. Ég finn að hann er stöðugt að nálgast þá almannaþjónustusýn sem ég hef haft. Ég fagna því. Ég hugsa að með þriðju og fjórðu umferð í umfjöllun okkar um almannaþjónustumál þá munum við færast enn þá nær hvor öðrum. Ég tel að sú leið að gera þjónustusamninga eins og hann er að tala um sé í rétta átt. Ég vil samt að við skilgreinum þá hvaða leiðir við ætlum að bjóða þjónustu á og öllum íbúum landsins verði ljóst hvaða samgöngum á að halda uppi og standa vörð um. Eins og hæstv. ráðherra minntist á er ljóst að sumar leiðir verða ekki arðbærar. Þá er veitt fé á fjárlögum til að styrkja þær leiðir og veita fjárstuðning, hugsanlega í framhaldi af útboðum eða samningum um verkefnin eins og frv. gefur möguleika á.
Ég vil hæla þessum sjónarmiðum ráðherra en ítreka að mér finnst skorta á að hún komi sterkar fram, þ.e. sú almannaþjónustuskylda sem við ættum að axla og bera.