Jóhann Ársælsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Það er bara eitt atriði sem ég vil koma að. Hæstv. ráðherra svaraði því ekki hvort hún ætlaði sér að nota tilnefningar sínar í þessa nefnd til að koma að fulltrúum sem væru sérstaklega valdir með náttúruverndarsjónarmið í huga. Mér finnst ástæða til að árétta það að samsetning nefndarinnar er þannig að það getur verið erfitt að taka íþyngjandi ákvarðanir fyrir atvinnulífið. Ég ætla ekki að endurtaka það sem ég sagði um það en óska eftir að hæstv. ráðherra svari því hvort hún ætli að nýta tækifæri sitt til að setja þarna inn fulltrúa náttúruverndar.