Breytingar á XIII. viðauka við EES-samninginn (flutningastarfsemi)

Föstudaginn 06. apríl 2001, kl. 16:30:28 (6597)

2001-04-06 16:30:28# 126. lþ. 108.29 fundur 447. mál: #A breytingar á XIII. viðauka við EES-samninginn (flutningastarfsemi)# þál., Frsm. JónK
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 126. lþ.

[16:30]

Frsm. utanrmn. (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti utanrmn. um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 94/2000, um breytingar á XIII. viðauka, um flutningastarfsemi, við EES-samninginn.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Stefán Hauk Jóhannesson og Högna S. Kristjánsson frá utanrrn. og Helga Jóhannesson frá samgrn. Þá barst nefndinni umsögn frá Sjómannafélagi Reykjavíkur.

Með þáltill. er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 94/2000, um breytingar á XIII. viðauka, um flutningastarfsemi, við EES-samninginn. Með samþykkt tilskipunar 1999/95/EB, sem lagt er til að verði felld inn í viðaukann, er stefnt að því að láta lágmarksreglur um skipulag vinnutíma á farskipum, sem innleiddar verða með tilskipun 1999/63/EB, ná til skipa sem skráð eru utan ESB en taka höfn á ESB-svæðinu þrátt fyrir að vera ekki skráð á skipaskrám ríkja þess.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Undir nefndarálitið rita hv. þm. Tómas Ingi Olrich, Jón Kristjánsson, Einar Guðfinnsson, Árni Ragnar Árnason, Rannveig Guðmundsdóttir, Jónína Bjartmarz, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Steingrímur J. Sigfússon sem ritar undir álitið með fyrirvara.