Sigríður Jóhannesdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Það fór ekki svo að þessi umræða rynni út án þess að það kæmi í ljós að ég og hæstv. landbrh. erum sammála um að hv. þm. eigi að vera viðstaddir umræðu í sínum málaflokkum. Ef þeir geta ekki komið því við af einhverjum ástæðum þá finnst mér að þeir eigi að semja við einhverja um að vera viðstaddir í sinn stað. Það má ekki minna vera en að nefndarmenn séu viðstaddir þegar mál eru rædd sem heyra undir viðkomandi nefnd. Mér finnst oft óþægilegt þegar farið er að vinna mál í nefndum og svo virðist sem nefndarmenn hafi aldrei séð þau, heyrt af þeim og þaðan af síður að þeir viti hvað kom fram við 1. umr. Við erum sem sagt sammála og gætum, svo ég kveði ekki fastar að orði, tekist í hendur upp á það, við hæstv. ráðherra.