Gunnar Birgisson:
Virðulegi forseti. Hv. málshefjandi beindi þessari spurningu til mín þar sem ég er formaður í þeirri nefnd sem á að kanna aðstöðu í landvinnslu og sjóvinnslu. Í störfum nefndarinnar kom upp sú spurning hvort brottkast væri þar ríkjandi áhrifaþáttur. Í framhaldi af því ákvað sjútvrh. að láta gera þessa skoðanakönnun meðal sjómanna og er það vel. Þessari könnun er lokið, úrvinnslu er lokið og niðurstöður verða væntanlega birtar núna næstu daga. Í beinu framhaldi af því mun sú nefnd sem ég veiti forustu skila af sér þannig að ekki mun vera lengi að bíða þar til sjútvn. getur fengið þetta til umfjöllunar.
En það var eitt sem ég hjó eftir sem hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson sagði. Hann sagði að brottkast væri fylgifiskur allra kvótakerfa. Ég stundaði sjómennsku áður en kvótakerfið kom á og það hefur hv. þm. líka gert og brottkast var mikið þá. Síðan munum við sjá það sem kemur fram í þessari könnun, sem er mjög vel unnin og talað er við marga sjómenn, hvernig þetta er í dag. En ég held að menn eigi ekki að alhæfa svona hluti að brottkast sé háð kvótakerfum eingöngu. En brottkast á náttúrlega ekki að þekkjast. Það er verið að henda verðmætum í hafið og menn eiga að vinna að því að reyna að koma með allan afla að landi, ekki vera að kasta verðmætum í hafið. En eins og ég segi þá kemur það í ljós bæði í þessari könnun og hins vegar tillögum í þeirri nefnd sem ég veiti forstöðu um þessi mál.