Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég kom inn í miðjar þessar umræður sem hafa staðið yfir um þetta mál og hef hlýtt með athygli á síðari hluta umræðunnar og þær deilur sem hafa verið uppi milli minni hluta og meiri hluta allshn. í þessu máli. Deilurnar snúast um það, eins og hér hefur komið fram, að minni hlutinn telur að ekki séu nægilegar rannsóknir eða athuganir að baki frv. dómsmrh. og það skorti á fagleg vinnubrögð til þess að hægt sé að meta hvort rétt sé að færa refsirammann upp eins og gert er ráð fyrir í frv. hæstv. dómsmrh.
Herra forseti. Ég vildi beina ákveðinni fyrirspurn til formanns allshn. af því tilefni að ég er komin í ræðustól og vildi því gjarnan að hún hlýddi á mál mitt.
Við þessa umræðu rifjaðist það upp fyrir mér af því að ég hef átt sæti í allshn. að refsirammar bæði varðandi fíkniefnabrot og fleiri brot eins og kynferðisbrot hafa iðulega verið til umræðu í allshn. Ég hef verið talsmaður þess að hafa harðar refsingar og þungar refsingar við bæði fíkniefnabrotum, kynferðisbrotum og alvarlegum líkamsárásum, svo dæmi séu nefnd, og hef flutt m.a. frv. um að þyngja refsingar við kynferðisbrotum gegn börnum. Þetta var rætt í allshn. og einmitt í kjölfar á slíkrar umræðu í allshn. sameinaðist nefndin um að flytja till. til þál. um rannsókn á refsingum við afbrotum einmitt til þess að láta slíka rannsókn fara fram, til þess að fagleg þekking og rannsókn fengist á því hvort rétt væri að fara út í það að þyngja refsingar við þessum tilteknu afbrotum.
Tillagan sem allshn. sameinaðist um var eftirfarandi, herra forseti, og hún var samþykkt á þinginu 1997--1998:
,,Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að láta fara fram rannsókn á ákvörðun refsinga við afbrotum. Rannsóknin taki til eftirfarandi brotaflokka:
a. líkamsárása og annarra brota sem tengd eru að öðru leyti við vísvitandi ofbeldi,
b. kynferðisbrota,
c. fíkniefnabrota.
Með rannsókninni skulu könnuð þau viðurlög sem dæmd hafa verið við þessum brotum og hvernig þau hafa þróast á undanförnum árum og áratugum. Skal rannsóknin einkum miða að því að leiða í ljós hvort unnt sé að sýna fram á að refsingar við fyrrgreindum brotum hafi þyngst eða séu nú vægari en áður. Rannsókn þessi skal taka til dóma Hæstaréttar og óáfrýjaðra héraðsdóma að svo miklu leyti sem nauðsynlegt er til að mat verði lagt á viðurlög við þessum afbrotum og þróun þeirra.
Eftir því sem unnt er skal rannsóknin framkvæmd þannig að til verði gagnagrunnur sem síðar væri hægt að bæta við upplýsingum og nota til frekari rannsókna.``
Hæstv. núv. dómsmrh. var formaður í allshn. þegar þessi þáltill. var flutt sem öll allshn. sameinaðist um flutning á einmitt með þeim rökum sem minni hlutinn færir hér í sínu nál., þ.e. að fyrir þurfi að liggja rannsóknir og fagleg vinnubrögð að baki ákvörðun þess að hækka refsimrök.
Ég féllst á sínum tíma á þessi rök sem allshn. mælti fyrir og ég stóð að þessum tillöguflutningi og hef því í kjölfar þess ekki beitt mér fyrir því að flytja hér inn í þingið frv. sem miðar að því að hækka refsimörk í þessum þremur afbrotaflokkum sem ég nefndi vegna þess að ég var að bíða eftir að fá þá niðurstöðu sem allshn. beitti sér fyrir að þingið samþykkti og núv. hæstv. dómsmrh. hafði ákveðið frumkvæði að. Þess vegna kemur mér nokkuð á óvart að málið sé flutt eins og hér er gert án þess að þessi athugun eða rannsókn liggi fyrir og hún hafi verið kynnt formlega fyrir þinginu vegna þess ég leit svo á að það yrði gert. Veittir voru fjármunir á fjárlögum til þess að fara í þessa rannsókn strax á því ári sem þáltill. var samþykkt og að því er ég best veit einnig a.m.k. árið eftir.
Í greinargerð með þessari tillögu stendur einmitt, með leyfi forseta:
,,Um nokkra hríð hefur í þjóðfélaginu staðið umræða um refsingar og refsiákvarðanir dómstóla. Komið hefur fram það sjónarmið meðal annars að dómstólar ákvarði of vægar refsingar í sumum brotaflokkum. Á það ekki síst við um grófar líkamsárásir, kynferðisbrot og fíkniefnabrot. Því hefur einnig verið haldið fram að refsingar fyrir alvarlegar líkamsárásir og kynferðisbrot séu of vægar með hliðsjón af refsingum við öðrum brotum og hafa auðgunarbrot sérstaklega verið nefnd í því sambandi.
Til að mat verði lagt á þá gagnrýni sem hér hefur verið rakin er nauðsynlegt að kanna viðurlög við afbrotum með samanburði og rannsóknum á refsingum eftir brotaflokkum og innan þeirra, auk þess sem þróun viðurlaga verði metin eftir því sem unnt er.``
Ég held einmitt að það sem ég er að lesa upp, herra forseti, sé nákvæmlega það sem minni hlutinn í nál. sínu er að kalla eftir, þ.e. að þannig verði gengið í þessi mál, unnið verði faglega og að fyrir liggi rannsóknir á refsingum og refsiramma samanborið við ýmsa aðra brotaflokka sem hér hafa verið nefndir.
Tína mætti annað og fleira til úr þessari tillögu. Í tillögunni er m.a. talað um að markmið rannsóknar á ákvörðun viðurlaga sé tilgreint með því að taka fram að rannsóknin skuli miða að því að leiða í ljós hvort unnt sé að mæla hvort refsingar við tilgreindum brotum hafi þyngst eða séu nú vægari en áður þannig að allt miðaði þetta að því að faglegar rannsóknir og úttektir lægju að baki því áður en ráðist yrði í að breyta refsirammanum. Ég viðurkenndi alveg þessi sjónarmið, að rétt væri og eðlilegt að fara í málið með þessum hætti og hef því, eins og ég sagði, herra forseti, ekki beitt mér fyrir flutningi á því að hækka eða breyta refsirammanum, hvorki í fíkniefnabrotum né í kynferðisbrotum sem ég taldi á þeim tíma að þyrfti að breyta. Þess vegna kemur mér það mjög á óvart, af því að ég hljóp á framsöguræðu t.d. dómsmrh. fyrir þessu máli áður en ég fór í ræðustól, að hæstv. dómsmrh., sem var formaður í allshn., skyldi ekki minnast á þessa rannsókn sem væntanlega er komin vel á veg eða hefur farið fram á vegum dómsmrn.
Ég velti því fyrir mér hvort allshn. hafi virkilega ekki farið neitt inn á þau atriði sem ég nefndi, þáltill. var samþykkt og þessi rannsókn hefur að því er ég best veit verið í gangi. Það kemur mér mjög á óvart ef allshn. hefur ekki fjallað um málið út frá forsendum og markmiðum í þál. sem sjálfur hæstv. núv. dómsmrh. beitti sér fyrir. Ég vil því spyrja, herra forseti, formann allshn.: Hvað getur hún sagt, þegar málið er komið til 2. umr., um þessa rannsókn á refsingu við afbrotum í þremur brotaflokkum, þ.e. við kynferðisbrotum, fíkniefnabrotum og líkamsárásum?
Mig minnir að það hafi átt að byrja á fíkniefnabrotunum fremur en kynferðisbrotunum. Þetta átti að gera í áföngum og menn vissu að þetta mundi taka nokkurn tíma. Ég vil því spyrja: Hvað líður þessari rannsókn? Var að einhverju leyti farið inn á hana í umfjöllun allshn. um málið? Hafi svo ekki verið, herra forseti, þá teldi ég nauðsynlegt að málið færi milli 2. og 3. umr. aftur inn í allshn. þannig að nefndin geti farið yfir stöðuna í dómsmrn. að því er varðar könnun á þessu máli. Ég tel könnunina mikilvægt innlegg í þessa umræðu og þær deilur sem staðið hafa yfir í dag. Ég minni á að hæstv. dómsmrh. hafði sjálf frumkvæði að áðurnefndri tillögu, að staðið yrði faglega að þessu máli og rannsóknir lægju að baki hækkun á refsirammanum. Eftir því hefur minni hlutinn einmitt verið að kalla hér í dag.
Ég vil spyrja hv. formann nefndarinnar um tvennt: Telur hún ekki eðlilegt að allshn. verði kölluð saman milli 2. og 3. umr. til að fjalla um málið sem ég nefndi hér? Í annan stað: Hafði hún vitneskju um þessa rannsókn og fjallaði allshn. um þessa rannsókn á einn eða annan hátt við meðferð málsins í nefnd?