Leikskólar

Þriðjudaginn 24. apríl 2001, kl. 18:52:11 (6762)

2001-04-24 18:52:11# 126. lþ. 110.22 fundur 652. mál: #A leikskólar# (starfslið) frv., SJóh
[prenta uppsett í dálka] 110. fundur, 126. lþ.

[18:52]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Hæstv. forseti. Ég sit í hv. menntmn. og hef tækifæri til að fjalla um frv. þar. En mig langar samt til að það komi fram hér að ég fagna þeirri opnun sem mér finnst felast í þessu frv. á að til geti komið aðrar menntaðar stéttir inn í leikskólann heldur en aðeins leikskólakennarar þó að þeir fari þar með forræði og hafi yfirumsjón með deildum. Skilningur minn er sá að frv. opni á að til geti komið stétt fóstruliða inn í leikskólana sem fái þar einhver réttindi og möguleika til að fá stöðu. Ég held að það væri til mikilla bóta og þess vegna vil ég lýsa yfir stuðningi við það.