Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. ráðherra. Ég mæli fyrir frv. til laga um Iðntæknistofnun Íslands, sem er 650. mál þingsins, á þskj. 1028.
Með frv. þessu er lagt til að lögfestar verði nokkrar breytingar á núgildandi lögum um Iðntæknistofnun Íslands, nr. 41/1978. Vegna þeirrar þróunar sem orðið hefur á ytra umhverfi iðnaðarins á þeim 23 árum sem liðin eru frá gildistöku laganna er orðið tímabært að endurskoða þau og aðlaga að nýjum aðstæðum. Aðallega er um að ræða breytingar sem auðvelda stofnuninni að taka með virkari hætti þátt í frumstigum nýsköpunar atvinnulífsins og veita frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum þá nauðsynlegu þjónustu sem krafist er í tæknisamfélagi nútímans.
Stofnunin hefur þróast frá því að vera rannsóknastofnun fyrir hefðbundinn iðnað í stofnun með mun víðtækara hlutverk er lýtur að nýsköpun og þverfaglegri atvinnuþróun almennt.
Hagnýtar rannsóknir fyrir atvinnulífið hafa ætíð verið grundvöllur starfseminnar og mun hin vísinda- og tæknilega þekking sem þar er að finna áfram verða sú trausta þekkingarstoð sem ný starfsemi byggir á. Stofnunin vinnur að markmiðum sínum í samstarfi við fyrirtæki, félög og einstaklinga, vísinda- og rannsóknastofnanir og stjórnvöld.
Íslenskt atvinnulíf hefur breyst mikið á undanförnum árum og hefur Iðntæknistofnun Íslands leitast við að laga starfsemi sína að breyttu umhverfi til að þjónusta sem best þörfum þess. Mikilvægar breytingar urðu fyrir tveimur árum með tilkomu nýrrar þjónustu fyrir frumkvöðla og fyrirtæki undir heitinu ,,Impra`` og rekstur frumkvöðlaseturs þar sem frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum er veitt aðstaða og aðstoð við að fullþróa viðskiptahugmyndir sínar og koma þeim í markaðshæft form.
Þessu frv. er einkum ætlað að festa þetta nýja hlutverk Iðntæknistofnunar Íslands í sessi og gera það að einu af meginhlutverkum stofnunarinnar. Jafnframt er kveðið á um að þjónusta stofnunarinnar, leiðsögn hennar og þekkingarmiðlun, sé til hagsbóta fyrir allar atvinnugreinar enda fara mörkin á milli atvinnugreinanna hratt hverfandi með tilkomu nýrra þekkingarsviða.
Hæstv. forseti. Ég mælist til þess að frv. verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. iðnn.