Forseti (Halldór Blöndal):
Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að forseti danska Þjóðþingsins, Ivar Hansen, er staddur á þingpöllum ásamt fylgdarliði. Forsetinn er staddur hér á landi í boði Alþingis.
Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta danska Þjóðþingsins og fylgdarlið velkomið í Alþingishúsið og vænti þess að för þeirra til Íslands verði til þess að styrkja enn frekar þau góðu tengsl sem eru á milli Alþingis og Þjóðþingsins.
Ég vil biðja hv. þm. að votta hinum dönsku gestum og dönsku þjóðinni vináttu og virðingu með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum].