Sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.

Miðvikudaginn 02. maí 2001, kl. 10:24:05 (7084)

2001-05-02 10:24:05# 126. lþ. 116.6 fundur 707. mál: #A sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.# frv., 708. mál: #A fjarskipti# (skilyrði rekstrarleyfis) frv., samgrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 126. lþ.

[10:24]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um sölu á hlutafé ríkissjóðs í Landssíma Íslands hf. og jafnframt frv. til laga um breytingu á fjarskiptalögum.

Salan á hlutafé ríkissjóðs í Landssíma Íslands er í samræmi við þá stefnu ríkisstjórnarinnar að halda beri áfram einkavæðingu ríkisfyrirtækja, einkum þeirra sem eru á samkeppnismarkaði. Með gildandi fjarskiptalögum sem ég beitti mér fyrir og tóku gildi 1. jan. 2000 voru sköpuð skilyrði fyrir raunverulegri samkeppni í fjarskiptum á Íslandi, samkeppni sem nú er orðin að veruleika. Þess vegna er ekki aðeins eðlilegt heldur beinlínis nauðsynlegt að ríkið hætti samkeppni við þá einstaklinga og fyrirtæki sem starfa á sama markaði.

Áform um einkavæðingu Landssíma Íslands eiga sér nokkurn aðdraganda. Símamálastofnanir víða um lönd hafa verið einkavæddar á undanförnum árum samhliða því að samkeppni á fjarskiptamarkaði hefur verið innleidd. Ástæðan er sú að ríkið hefur viljað draga sig út úr rekstri á samkeppnismarkaði. Auk þess hefur mönnum orðið ljóst að með samkeppni á fjarskiptamarkaði þar sem fyrirtækin keppa um hylli neytenda má bæta þjónustuna og lækka verð á henni.

Við þessar nýju aðstæður hefur hlutverk stjórnvalda breyst mikið. Í stað þess að standa sjálf í rekstri símafyrirtækja er það nú hlutverk stjórnvalda að skapa þær aðstæður að samkeppni verði raunveruleg en jafnframt að tryggja aðgang allra landsmanna að nútímafjarskiptaþjónustu.

Með lögum nr. 103/1996 var stofnað hlutafélag um rekstur Póst- og símamálastofnunar. Samkvæmt þeim verða hlutir í félaginu ekki seldir nema með samþykki Alþingis. Með því var tryggt að hlutum í fyrirtækinu yrði ekki ráðstafað nema að loknum nauðsynlegum undirbúningi. Af því tilefni og til þess að vanda allan undirbúning að sölu hlutafjár í Landssímanum fól ég framkvæmdanefnd um einkavæðingu að vinna tillögur um hvernig staðið skuli að sölu hlutabréfa í Landssíma Íslands hf. Sérstaklega var lagt fyrir nefndina að skoða eftirfarandi atriði er tengjast undirbúningi sölu:

1. Að tryggja starfsfólki kauprétt á hlutafé í fyrirtækinu með hliðsjón af sambærilegum tilvikum við sölu annarra ríkisfyrirtækja.

2. Að ákveðinn hluti verði seldur í almennri dreifðri sölu og þá sérstaklega símnotendum.

3. Að kanna kosti og galla þess að selja umtalsverðan hlut í fyrirtækinu til eins aðila.

4. Að meta hagkvæmni þeirra hugmynda sem fram hafa komið um að skilja að einstaka þætti í starfsemi fyrirtækisins, svo sem hið almenna fjarskiptanet.

Nefndin svaraði þessum spurningum með skýrslu sem gefin var út í lok janúar sl. Í skýrslunni var lagt til að salan færi fram í þremur áföngum. Í fyrsta áfanga yrði almenningi, starfsmönnum og fjárfestum boðin 24% fyrirtækisins. Í öðrum áfanga yrði leitað eftir kjölfestufjárfesti í lokuðu útboði að loknu forvali. Sú sala næmi 25% hlutafjár með hugsanlegri 10% viðbót síðar. Í þriðja áfanga yrðu þau 51% sem eftir verða seld.

Við einkavæðingu ríkisfyrirtækja á undanförnum árum hefur verið lögð áhersla á sölu á hlutabréfum til starfsmanna. Mótuð hefur verið sérstök aðferðafræði sem einkavæðingarnefnd leggur til að lögð verði til grundvallar við sölu á hlutabréfum til starfsmanna Landssíma Íslands hf. Landssími Íslands hefur mikla markaðshlutdeild í fjarskiptaþjónustu hér á landi þótt eðlilega hafi hún farið minnkandi eftir að markaðurinn var opnaður fyrir samkeppni.

Markaðshlutdeild Símans er mismikil eftir þjónustugreinum. Hæst er hún í fastlínuþjónustu eða yfir 90%. Í farsímarekstri er markaðshlutdeildin 75% og lægri í gagnaflutningaþjónustu en á því sviði er örðugra um upplýsingar þar sem margir smærri aðilar starfa. Ef horft er til opinberra veltutalna helstu fyrirtækja á þessu sviði má ætla að heildarmarkaðshlutdeild Landssímans sé komin niður fyrir 85%. Þetta hlutfall fer sýnilega lækkandi samhliða því að nýir samkeppnisaðilar Símans fá aukinn styrk. Ný fyrirtæki hafa á mjög skömmum tíma náð að tryggja sér fótfestu á fjarskiptamarkaðnum og veita Símanum samkeppni, samkeppni sem stuðlar að betri frammistöðu Símans og þannig betri þjónustu við alla landsmenn.

Ég er þess fullviss að sá rammi sem fjarskiptalöggjöfin hefur búið fjarskiptamarkaðnum tryggir að samkeppnisaðilar Landssímans fái eðlilegt svigrúm til athafna, m.a. til að bjóða þjónustu á grunnkerfum Landssímans. Þessu til staðfestingar eru samningar Íslandssíma og Tals um aðgang að farsímakerfi Landssímans. Samningarnir eru til marks um að heilbrigðir viðskiptahættir þróast hratt á þessu sviði þannig að hagkvæmni og fjölbreytni fari vaxandi.

Þetta þýðir vissulega að markaðshlutdeild Landssímans mun minnka en þarf síður en svo að þýða að umsvifin minnki. Á það ber að líta að mörk fjarskiptaþjónustu og ýmissa annarra starfsgreina hafa orðið óskýrari síðustu árin. Því er spáð að sú þróun haldi áfram. Þannig eru þess glögg merki að símafyrirtæki sæki meira inn á vettvang afþreyingar, fjölmiðlunar og upplýsingatækni í sífellt víðari merkingu. Fjarþjónusta í tölvutækni fer vaxandi og símafyrirtæki hafa víðast haslað sér völl á því sviði. Sömu einkenni má sjá í íslenskum fjarskiptamarkaði og þau má greina í breyttum áherslum Landssímans. Þess er því að vænta að samhliða því að markaðshlutdeild félagsins minnkar í hefðbundinni fjarskiptaþjónustu auki það áherslur á önnur skyld svið, haldi uppi heilbrigðum vexti í starfsemi sinni og verði þannig verðmætara.

[10:30]

Afkoma af rekstri Landssíma Íslands hefur verið mjög góð síðustu árin. Á síðasta ári skilaði reksturinn 6,6 milljörðum í rekstrarafgang fyrir afskriftir og fjármagnskostnað. Þetta eru liðlega 40% af tekjum. Er það hlutfall mjög gott í alþjóðlegum samanburði símafélaga og í ljósi þess að símgjöld á Íslandi eru með því lægsta sem þekkist. Samkeppnisyfirvöld lýstu þeirri afstöðu að félagið hafi verið vanmetið við breytingu á Póst- og símamálastofnun í hlutafélag. Niðurstaða nefndar sem ég fól að endurskoða stofnefnahagsreikning félagsins í kjölfar ákvörðunar samkeppnisyfirvalda var sú að félagið skyldi greiða rétt um 5 milljarða í ríkissjóð. Hefur nú verið gengið frá því máli og fjárhæðin að fullu gjaldfærð í reikningum félagsins.

Sú ákvörðun að gjaldfæra þessar skuldbindingar að fullu á síðasta ári var ákvarðandi um niðurstöðutölur reikninga síðasta árs en hagnaður eftir skatta var 149 millj. Stefna félagsins nú er að hagnaður eftir skatta verði að meðaltali meira en 100 millj. á mánuði á yfirstandandi ári.

Í umræðunni um sölu Landssímans hefur því verið haldið fram að aðskilja beri grunnnetið frá annarri starfsemi fyrirtækisins. Ég óskaði sérstaklega eftir því við einkavæðingarnefnd að metin yrði hagkvæmni þess að skilja að einstaka þætti í starfsemi fyrirtækisins svo sem hið almenna fjarskiptanet. Nefndin skoðaði bæði rekstrarlegar og tæknilegar forsendur slíkrar skiptingar og kallaði til ráðgjafar sérfræðinga á þessu sviði. Niðurstaða nefndarinnar var sú að ekki sé ástæða til að skipta rekstri fyrirtækisins út frá sjónarmiðum um þjónustu, samkeppni eða vegna fyrirhugaðrar einkavæðingar. Margháttuð rök hafa verið færð gegn því að skipta Landssíma Íslands í tvö eða fleiri fyrirtæki vegna fyrirhugaðrar einkavæðingar. Þessi tel ég vega hvað þyngst:

1. Langt fram eftir nýliðinni öld var lagaumhverfi fjarskiptafyrirtækja við það miðað að eitt ríkisfyrirtæki átti allt fjarskiptanetið og hafði einkarétt á öllum fjarskiptum. Símamálastofnanir nutu lögbundins einkaréttar en þurftu jafnframt að lúta ströngu aðhaldi með verðlagningu þjónustu og þjónustustigi. Þrátt fyrir að dregið hafi verið úr nauðsyn slíkra aðgerða eru í gildi ítarlegar reglur sem tryggja hagsmuni samkeppnisaðila og notenda fjarskiptaþjónustu, einkum ef samkeppni skortir. Staða þeirra gagnvart símanum er því lík hvort sem hún er veitt af fyrirtæki í einkaeign eða sérstakri símamálastofnun í eigu ríkisins.

2. Lög og reglur áskilja að þjónusta milli rekstrareininga Landssímans sé seld á sama verði og til annarra fjarskiptafyrirtækja. Upplýsinga- og reikningskerfi Landssímans gerir kleift að skilja að einstaka kostnaðarþætti þannig að verðlagning þeirra sé í samræmi við raun kostnað. Málsmeðferðarreglur fjarskiptalaga tryggja að samkeppnisaðilar Landssímans eiga lögvarða kröfu á því að þjónusta sem þeir kaupa sé seld á sama verði og því sem aðrar deildir Landssímans greiða fyrir sams konar þjónustu. Notendur og fjarskiptafyrirtæki í samkeppni við Landssímann greiða því ekki hærri gjöld fyrir fjarskiptaþjónustu en þeir mundu gera ef fyrirtækinu yrði skipt upp.

3. Í fjarskiptalögum er almennum notendum tryggður aðgangur að umtalsverðum flutningshraða á sama verði um allt land með svokallaðri alþjónustu. Auk þess hef ég heimildir til þess sem samgrh. að leggja í framkvæmdir eða rekstur sem er til almannaheilla í öryggisskyni af umhverfisástæðum eða samkvæmt byggðasjónarmiðum og ætla má að skili ekki arði. Fjarskiptaþjónusta við skip í öryggisskyni er dæmi um slíka þjónustu.

Þessi þrjú atriði sýna glöggt að staða notenda og samkeppnisaðila er vel tryggð án tillits til þess hvort grunnnet og þjónusta verða skilin að eða ekki.

Þá er á það að líta að veruleg vandkvæði eru á að skipta fyrirtækinu. Tæknileg sjónarmið þess eru fyrst og fremst að erfitt er að skilja þjónustu grunnnetsins frá annarri þjónustu. Slíkur aðskilnaður krefst gífurlegrar fjárfestingar í stjórn og tengibúnaði sem hefði í för með sér aukinn kostnað fyrir neytendur.

Þegar fjallað er um skiptingu fyrirtækisins er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir þeim öru breytingum sem orðið hafa á þessum markaði á undanförnum missirum. Sem dæmi má nefna að samtök hugbúnaðarfyrirtækja töldu fyrir aðeins þremur árum að skipta bæri fyrirtækinu upp með þeim hætti að dreifikerfið yrði skilið eftir í sérstöku fyrirtæki. Formaður samtakanna hefur nú lýst því yfir að ekki sé lengur ástæða til þess. Fyrirtæki á fjarskiptamarkaðnum hafa tekið í sama streng. Til að taka saman þau meginatriði sem mæla gegn aðskilnaði grunnnets og þjónustu vil ég nefna eftirfarandi:

1. Samkeppni fer vaxandi í rekstri grunnneta í fjarskiptaþjónustu, eins og ég mun víkja nánar að síðar. Hafa ber í huga að grunnnet Landssímans er nú þegar í samkeppni við t.d. Línu.Net og Íslandssíma.

2. Slíkum aðskilnaði fylgja tæknileg vandkvæði eins og ég nefndi fyrr sem auka kostnað fyrir neytendur.

3. Aðskilnaður nets og þjónustu hefur enga sérstaða þýðingu þar sem fjarskiptalög mæla þegar fyrir um bókhaldslegan aðskilnað í rekstrarþáttum Landssímans.

4. Nefna má að ýmiss konar kvaðir hafa verið lagðar á Landssímann og gerðar eru miklar kröfur til þjónustu fyrirtækisins um allt land. Ef fyrirtækinu yrði skipt upp er hætt við að það yrði veikara og möguleikar þess til að veita öllum landsmönnum þjónustu yrðu skertir.

5. Lagalegt umhverfi tryggir samkeppnisaðilum Landssímans greiðan aðgang að grunnkerfinu á sama verði og Landssíminn.

6. Sala á fyrirtækinu án grunnnetsins mundi væntanlega draga úr líkum á því að kjölfestufjárfestar sýndu fyrirtækinu áhuga þar sem ákveðin óvissa yrði um mögulega þróun fyrirtækisins. Kjölfestufjárfestar eru að leita að viðskiptatækifærum og geta einungis metið fyrirtækið út frá þekktum stærðum og aðstæðum.

Af framansögðu er því ljóst að öll rök hníga í þá átt að Landssími Íslands verði ekki hlutaður í sundur. Ekki síst vegur hér þungt að hagsmunum hinna dreifðu byggða er best borgið með þjónustu öflugs fjarskiptafyrirtækis og eðlilegri samkeppni á þeim markaði án ríkisafskipta.

Þá vil ég sérstaklega nefna að gefnu tilefni að aðskilnaður kerfa í raforkudreifikerfinu og aðskilnaður kerfa í fjarskiptakerfinu eru ekki sambærilegir. Fjarskiptanetin eru margbreytilegri og flóknari en raforkudreifikerfin en grundvallaratriðið er þó að á fjarskiptamarkaðinum er nú þegar til staðar samkeppni í dreifingunni ólíkt því sem gerist í dreifingu á raforku. Þá er þess að geta að hvergi í Evrópu hefur sú leið verið farin að skilja sambærileg fyrirtæki í sundur og halda grunnkerfinu eftir í ríkisrekstri. Þrátt fyrir sölu ríkisins á hlutabréfum í eigu þess hafa stjórnvöld verulegra hagsmuna að gæta að því að félagið sé vel og örugglega rekið og í fullu samræmi við tilgang þess og markmið fjarskiptalaga. Landssíminn hefur byggt upp fullkomið fjarskiptakerfi og fjarskiptaþjónustu sem allir landsmenn eiga aðgang að samkvæmt gildandi fjarskiptalögum.

Í samgrn. hefur verið unnið markvisst að því að efla möguleika allra landsmanna á að njóta nútímalegrar fjarskiptaþjónustu á hagstæðu verði. Fyrst ber að nefna fjarskiptalögin sem tóku gildi þann 1. janúar 2000. Með þeim var komið á lagaumhverfi sem annars vegar auðveldar aðgang nýrra fyrirtækja að markaði og hins vegar allra landsmanna að gagnaflutningaþjónustu á forsendum alþjónustu en í 13. gr. fjarskiptalaga er það nýmæli að gagnaflutningaþjónusta með 128 kb/s flutningsgetu sem notendur tengjast um heimtaugar almenna talsímanetsins teljist til alþjónustu. Í leyfisbréfi Landssímans og í samkomulagi fyrirtækisins við samgrh. frá 16. mars sl. er tryggð stórfelld uppbygging ATM-gagnaflutninganetsins og ADSL-þjónustu auk þess sem framtíð NMT langdræga farsímakerfisins er tryggð.

Í kjölfar samkomulagsins kynnti Landssími Íslands hf. á síðasta hausti aðgerðir til að mæta þörfum landsbyggðarinnar fyrir þjónustu á sviði gagnaflutninga og til að ná fram markmiðum um aukna gagnaflutningaþjónustu við almenning og atvinnulíf í landinu. Í áætlunum fyrirtækisins felst stórfelld verðlækkun og aukin þjónusta um allt land. Landssíminn skuldbatt sig til fimm ára til að tryggja viðskiptavinum á öllum þéttbýlisstöðum með fleiri en 150 íbúa aðgang að 2 Mb/s samböndum yfir ATM-netið eða sambærilega þjónustu á verði sem sé það sama innan hvers svæðis en aukakostnaður við tengingu út fyrir svæðið verði ekki umfram 17 þús. kr. á mánuði.

Fyrir liggur að nokkur halli verður á þessari þjónustu Símans í fyrstu en áætlanir félagsins miðast við það að þessi halli snúist í hagnað með vaxandi umferð um fjarskiptanetið. Til að tryggja að því marki verði náð og að þessi þjónusta veiki ekki rekstrarforsendur félagsins verður áfram unnið að hagræðingu í rekstri stofnlínuþjónustu. Þá er jafnframt við það miðað að öll önnur fjarskiptafyrirtæki hafi áfram aðstöðu til endursölu þessarar þjónustu líkt og verið hefur.

Auk þessara sértæku aðgerða stjórnvalda og fyrirtækisins til að jafna aðstöðumun notenda á fjarskiptaþjónustu hér á landi stuðlar aukin samkeppni ótvírætt að lægra verði á fjarskiptaþjónustu til almennings. Því ber að fagna vaxandi samkeppni um allt land þar sem ný fjarskiptafyrirtæki hafa ýmist hafið starfsemi eða hafa uppi áform um uppbyggingu nýrra fjarskiptaneta.

Uppbygging öflugra ljósleiðaraneta utan höfuðborgarsvæðisins virðist nú einnig vera orðinn hagkvæmur fjárfestingarkostur að mati annarra fyrirtækja en Landssímans. Nýr ljósleiðari hefur þegar verið lagður austur fyrir fjall og til Vestmannaeyja á vegum Íslandssíma og Línu.Nets. Áform eru uppi um lagningu nýs ljósleiðara til Akureyrar og fjarskiptafyrirtækið Fjarski sem er í eigu Landsvirkjunar er að gera tilraunir með lagningu ljósleiðara í tengslum við dreifikerfi sitt sem nær um allt land. Fyrirtækið hefur þegar gert samninga við Rannsóknar- og háskólanet Íslands hf. um uppbyggingu ljósleiðaranets á landsvísu. Því er líklegt að önnur fyrirtæki muni veita Landssímanum samkeppni í netaðgangi um landið allt. Þá hafa Íslandssími og Lína.Net unnið að uppbyggingu á eigin neti.

Ljóst er að á næstu missirum fer í hönd tími mikilla breytinga í fjarskiptaþjónustu þar sem ný kynslóð farsíma mun að einhverju leyti leysa af hólmi þjónustu hjá almenna farsímanetinu og hefðbundna GSM-þjónustu. Mikilvægt er að almenna farsímanetið um allt land verði byggt upp með þetta fyrir augum.

Samhliða sölu Landssíma Íslands verður lögð áhersla á framtíðaruppbyggingu fjarskiptakerfisins. Vilji minn í þessu sambandi er skýr. Ég tel að leitað verði leiða til að styrkja svo sem unnt er bæði dreifikerfið og þjónustu um landið allt. Því hefur verið mótuð í samgrn. skýr stefna varðandi framtíð gagnaflutnings og fjarskiptaþjónustu sem m.a. kemur fram í fjarskiptalögunum.

Þá vil ég nefna að á síðasta ári var á vegum ráðuneytisins og svokallaðrar RUT-nefndar gerð skýrsla um stafrænt Ísland þar sem metin var bandvíddarþörf til og frá landinu. Niðurstaða hennar hefur haft þau áhrif að undirbúningur fjarskiptafyrirtækja að lagningu nýs ljósleiðara til Evrópu er kominn vel á veg. Þá hefur eins og ég hef þegar vikið að í ræðu minni verið gripið til ýmiss konar ráðstafana vegna sölu Landssímans sem hafa það að markmiði að bæta aðgang allra landsmanna án tillis til búsetu að nútímalegri gagnaflutnings- og fjarskiptaþjónustu. Samgrn. tekur einnig þátt í starfi á vegum verkefnisstjórnar um upplýsingasamfélagið og í samstarfi við menntmrn. um hvernig koma megi á öflugum flutningsleiðum í upplýsingatækni til allra skóla í landinu. Að þessu er unnið.

Öflugar eftirlitsstofnanir eiga að tryggja að samkeppni geti þrifist um landið allt. Póst- og fjarskiptastofnun og Samkeppnisstofnun hafa gert með sér samning um gagnkvæmt samráð í málum er varða samkeppnis- og fjarskiptalög. Einnig hafa ný lög verið sett um Póst- og fjarskiptastofnun sem hafa það að markmiði að efla heimildir stofnunarinnar gagnvart fjarskiptafyrirtækjum með umtalsverða markaðshlutdeild. Eftirlitsstofnanir stjórnvalda geta því tryggt að eftir skilmálum leyfisbréfa sé farið. Fjarskiptafyrirtækin hafa gert með sér hagkvæma samtengingarsamninga, og samstarf um númeraflutning, forskeyti og aðgang að heimtaugum er með því besta sem þekkist.

Eins og ég hef rakið hefur rekstur fjarskiptafyrirtækja breyst í grundvallaratriðum á undanförnum árum. Kröfur um sveigjanleika fjarskiptafyrirtækjanna hafa jafnframt aukist verulega. Fyrirtæki sem hagnýta nýjustu tækni hafa komið fram á undanförnum mánuðum og gera auknar kröfur til aðlögunarhæfni Landssíma Íslands. Aðhald sem fylgir hæfilega dreifðu eignarhaldi Símans stuðlar því ótvírætt að hagkvæmri þróun íslensks fjarskiptamarkaðar.

Ég legg áherslu á að salan fari fram þegar aðstæður og almennt ástand í efnahagsmálum mælir með því. Ég hef heyrt ýmsa úr röðum stjórnarandstöðunnar lýsa efasemdum um sölu á hlutafé ríkisins í Landssíma Íslands hf. núna á þeim grundvelli að verðmæti félagsins hafi fallið. Rétt er að undirstrika í umræðunni að ekkert verðmat á Landssíma Íslands hefur enn farið fram vegna fyrirhugaðrar sölu. Hins vegar er rétt að mat markaða á verðmæti tæknifyrirtækja hefur breyst mjög mikið á tiltölulega stuttum tíma. Þannig hafa símafyrirtæki um allan heim lækkað umtalsvert frá því að þau voru metin hvað hæst í mars og apríl á sl. ári. Um þetta þarf ekki að deila. Um hitt virðast sérfræðingar nokkuð sammála að verðþróun hlutabréfa í tæknifyrirtækjum hafi á sl. ári endurspeglað meiri væntingar til vaxtar og framtíðarhagnaðar en fyrirtækin fái staðið undir. Fyrirtækin voru því í raun ofmetin. Þess er vart að vænta að hlutabréfamarkaðurinn komist á ný í þær hæðir sem hann var á sl. ári.

[10:45]

Ég tel heldur ekki sjálfsagt að harma, líkt og formaður Samfylkingarinnar, að hafa ekki nú þegar selt íslenskum almenningi hlut í Símanum á verði sem einungis hefði getað lækkað. Ríkissjóður getur ekki komið fram eins og hver annar spákaupmaður sem reynir að koma eignum sínu út á sem hæstu verði á kostnað almennings sem kaupir þær í góðri trú. Það verð sem nú er á eignarhlutum í símafélögum gefur fjárfestum raunhæfa von um að fjárfesting í öflugum og vel reknum félögum geti skilað góðum arði. Þetta er mikilvæg forsenda vel heppnaðrar einkavæðingar með mikilli þátttöku alls almennings.

Ég ætla ekki að hafa hér uppi neinar getgátur um verðmæti Landssímans um þessar mundir. Að því mati vinna nú þrautreyndir og virtir sérfræðingar. Hitt veit ég að rekstrartölur Landssímans gefa mjög ákveðið til kynna að félagið standi sterkum fótum og komi vel út í samanburði við önnur evrópsk símafélög. Þá ber að hafa í huga að verðmæti Landssímans hlýtur einnig að taka mið af sterkri stöðu félagsins á hinum íslenska fjarskiptamarkaði.

Með einkavæðingu Landssímans má ná margþættum markmiðum. Aukið frjálsræði í viðskiptum hefur opnað augu íslenskra fjárfesta fyrir því að þeir eiga ekki síður möguleika á að festa fé sitt í atvinnurekstri í útlöndum. Því eru bornir saman fjárfestingarkostir hér heima sem erlendis. Ef þeir finnast ekki nægilega áhugaverðir hér á landi leitar féð úr landi. Við þær aðstæður er mikilvægt að ríkið beiti áhrifum sínum til að bjóða fram áhugaverða fjárfestingarkosti, kosti sem geti bæði laðað fram aukinn sparnað almennings með mikilli þátttöku í almennri sölu og gefið stofnfjárfestum nýtt tilefni til að festa fé sitt innan lands. Þannig má draga úr útstreymi til erlendra fjárfestinga. Kaup á hlut í Landssíma Íslands eru vel til þess fallin að mæta þessum sjónarmiðum. Því eru almenn efnahagsleg rök fyrir því að hraða sölu á hlut í Símanum eins og ríkisstjórnin stefnir að.

Að endingu minni ég á að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er skýrt kveðið á um að tekjum af sölu ríkisfyrirtækja verði varið til að greiða niður skuldir ríkissjóðs, til að fjármagna sérstök verkefni í samgöngumálum og til þess að efla upplýsingasamfélagið. Að því verður unnið svo fjarskiptin og upplýsingatæknin geti nýst atvinnulífi og einstaklingum um land allt.

Herra forseti. Ég mæli jafnframt fyrir frv. til laga um breytingu á fjarskiptalögum. Samkvæmt því er Póst- og fjarskiptastofnun veitt heimild til að setja skilyrði í leyfisbréf rekstrarleyfishafa með umtalsverða markaðshlutdeild um að eigendur rýri ekki efnahag leyfishafans eða geri aðrar óvenjulegar ráðstafanir sem dragi verulega úr möguleikum til þess að uppfylla skyldur sínar samkvæmt lögum og samkvæmt leyfisbréfi fyrirtækisins.

Ljóst er að ríkir almanna- og öryggishagsmunir tengjast fjarskiptum. Með ákvæði af þessum toga er fyrir fram unnt að tryggja að eigendur rekstrarleyfishafa með umtalsverða markaðshlutdeild framkvæmi nauðsynlegar fjárfestingar í grunnnetinu og öðrum fjarskiptakerfum í þeim tilgangi að þjóna dreifðari byggðum og leggja grunn að áframhaldandi nýsköpun í rekstri leyfishafans.

Á Landssímanum hvíla margs konar skyldur eins og ég hef þegar rakið í framsöguræðu minni vegna frv. til laga um sölu Símans. Þykir rétt að Póst- og fjarskiptastofnun setji í leyfisbréf skilyrði sem tryggi fyrir fram að ekki séu gerðar óvenjulegar ráðstafanir í rekstri félagsins sem stefni í verulega hættu möguleika rekstrarleyfishafans til að uppfylla skyldur sínar. Á hinn bóginn mundu allar venjulegar ráðstafanir falla utan við þetta sérstaka skilyrði. Við túlkun Póst- og fjarskiptastofnunar á skilyrðinu þyrfti því að leggja til grundvallar að hér er um að ræða undantekningarreglu sem skýra beri þröngri lögskýringu.

Póst- og fjarskiptastofnun er kleift að fylgja slíkum skilyrðum eftir í krafti eftirlitsúrræða á grundvelli 5. gr. laga um Póst- og fjarskiptastofnun. Geta gróf brot varðað leyfissviptingu, rekstrarstöðvun og dagsektum.

Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvörpunum tveimur sem ég hef mælt fyrir verði að lokinni umræðu vísað til 2. umr. og hv. samgn.