Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):
Herra forseti. Það er auðvitað fjarri lagi að ég hafi ekki átt fundi með fulltrúm Símans. (ÖS: Ekki í gær.) Jú, einmitt í gær. (Gripið fram í.) Ég átti marga fundi í gær. Ég get trúað hv. þm. fyrir því, m.a. með formanni stjórnar Landssímans og forstjóra Landssímans til þess að fara yfir öll þessi mál.
Ég tel mjög eðlilegt að einkavæðingarnefnd hotti á alla aðila sem að þessu máli koma og þurfa að vinna að því og geri þá kröfu að vel sé að öllu staðið. Ráðgjafarfyrirtækið og bankinn sem vinna að þessu máli hafa átt marga fundi með starfsmönnum Símans. Þeir staðfestu í gær það sem ég sagði eftir að hafa kynnt sér stöðu mála hjá Landssímanum. Ég er sannfærður um að þeir hefðu ekki gert það ef þeir hefðu óttast að ekki hafi verið unnið eins og þurft hefur. Þeir gerðu það ekki án þess að vera öruggir um að hafa allt í hendi sem þarf til að sinna verkefninu.