Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Ég hef ekki séð aðra eins útreið á nokkrum þingmanni síðan hér um árið þegar sami hv. þm. var tekinn í karphúsið af þingheimi. Þá skipti hann um skoðun varðandi smábáta. Ég vorkenni hv. þm. en hann kallar þetta sjálfur yfir sig. Hann kemur hér og gefur þingmönnum einkunnir og fór háðuglegum orðum um ræðu hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar, enda situr hann hérna kafrjóður af sneypuför sinni.
Herra forseti. Hv. þm. kemur líka með rangar staðæfingar. Hann segir að forvígismenn fjarskiptafyrirtækjanna séu ánægðir með þetta. Má ég vísa í Eyþór Arnalds sem hefur sagt að það eigi að skilja grunnnetið frá og skapa um það sérstakt fyrirtæki. Má ég benda honum á það? Má ég benda honum á grein Arnar Orrasonar í Morgunblaðinu 14. febrúar, en hann er framkvæmdastjóri fjarskiptasviðs Íslandssíma? Hann bendir á hið sama. Má ég svo benda hv. þm. á niðurlagið í þeim kafla skýrslu einkavæðingarnefndar sem fjallar um þetta? Þar er sagt beinum orðum að þetta sé allt tæknilega kleift.
Allt það sem hv. þm. segir hér er bara tómt bull. Ég ætla ekki að segja að hann eigi að skammast sín en hann ætti nú eiginlega að fara heim til sín og ekki láta sjá sig í nokkra daga eftir svona ræður.