Sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.

Miðvikudaginn 02. maí 2001, kl. 14:00:39 (7138)

2001-05-02 14:00:39# 126. lþ. 116.6 fundur 707. mál: #A sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.# frv., 708. mál: #A fjarskipti# (skilyrði rekstrarleyfis) frv., Forseti ÁSJ
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 126. lþ.

[14:00]

Forseti (Árni Steinar Jóhannsson):

Forseti vill í tilefni af því að tvisvar frá því þessi þingfundur hófst í morgun hafa hringt farsímar í þingsalnum koma með þau eindregnu tilmæli eins og oft áður að þingmenn hafi ekki með sér farsíma inn í þingsalinn þannig að þeir hringi hér og trufli þingfund. Forseti óskar eftir því að farsímarnir séu helst skildir eftir niðri í fatahengi en alls ekki að komið sé með þá í þingsalinn. Þetta hefur gerst tvisvar og við þurfum þráfaldlega að minna á þetta.