Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Það getur vel verið að framsóknarmenn eigi eftir að skipta um skoðun aftur.
En málið er svo einfalt, ef hv. þm. hefur lesið lögin, að hægt er að ríkisstyrkja þá hluta þjónustunnar sem fyrirtæki geta sýnt fram á að séu óarðbær, m.a. eftir landfræðilegum ástæðum eða öðrum slíkum. Þá verður fyrirtækið að sýna fram á að þessi þjónusta, símaþjónusta, sem er allt í lagi að veita hér og ber sig hér á höfuðborgarsvæðinu eða einhvers staðar, sé því miður of dýr landfræðilega séð þegar komið er hvort heldur á Snæfellsnes eða austur á Langanes, og þá þurfum við ríkisstyrki til þess. Ég hefði alveg eins getað sagt: Við þurfum jafnmikinn ríkisstyrk til að halda uppi þeirri þjónustu sem er í boði hér og þar. Það eigi ekki að heimila að flokka fólk með þessum hætti varðandi þessa þjónustu.
Það er þetta sem ég vildi leggja áherslu á, herra forseti. Allir eiga að vera jafnir gagnvart þessari þjónustu og umræðunni og skilgreiningunni á henni.