Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Ég get alveg virt þá skoðun að vinstri grænir vilji hafa Símann sem ríkisfyrirtæki. Það er alveg gild skoðun í mínum huga. Ég er algerlega ósammála henni að sjálfsögðu. Þó svo að hv. þm. hafi ekki haldið hér beina ræðu, þá hefur hann verið í andsvörum og sagt skoðanir sínar á þessu máli, m.a. með þeim orðum að ríkisreksturinn hafi skilað það miklu í því formi sem hann er í að það sé ástæðulaust að breyta neitt í þeim efnum. Þess vegna finnst mér að hv. þm. hafi lýst skoðun sinni og hann hafi lýst því hvers vegna.
Ég hef líka heyrt það frá vinstri grænum, sérstaklega hv. þm. Jóni Bjarnasyni, að þetta mál hafi verið illa undirbúið og hér hafi menn rasað um ráð fram og þetta sé mál sem ekki sé tilbúið til umræðu. Ég vil líka mótmæla því. Þetta mál er mjög vel undirbúið og hefur verið í vinnslu í fimm ár.