Magnús Stefánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég tel það mjög mikilvægt að það komi fram hjá hv. þm. hvað hann á við þegar hann skilgreinir grunnnetið. Það er bara gott eitt um það að segja. Ég hef aldrei lýst skoðunum mínum á því hvað er grunnnet og hef ekki farið yfir það í þessari umræðu. Ég tel mikilvægt eins og ég hef sagt að Samfylkingin komi því á hreint hvað átt er við með grunnnetinu sem hún vill ekki selja og hv. þm. hefur farið yfir það, skilgreiningu sína á því og ég þakka honum að sjálfsögðu fyrir að það kom fram í þessari umræðu sem ég tel mjög mikilvægt að það geri.
En sem sagt, Samfylkingin vill ekki selja grunnnetið en samkeppnisreksturinn vilja þeir selja og þar með starfsfólk Símans.