Ísólfur Gylfi Pálmason:
Herra forseti. Ég tek undir áhyggjur hv. 5. þm. Norðurl. v. um gengislækkun krónunnar. Þó telja margir hagfræðingar að hér sé um tímabundið ástand að ræða og við höfum óneitanlega orðið vör við það hér á Íslandi undanfarna daga. Ég tek líka undir áhyggjur hv. þm. af viðskiptahalla sem er verulegt áhyggjuefni fyrir íslenska þjóð. En við megum ekki gleyma því að við leysum ekki þessi vandamál með upphlaupum sem þessum hér í þingsal.
Við hljótum líka að velta fyrir okkur lausnum í þessum málum. Og við hljótum líka að velta fyrir okkur hvað sé til ráða?
Herra forseti. Ég vil spyrja hv. þm. hvort sinnaskipti hafi orðið hjá Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði í þessum efnum. Vill Vinstri hreyfingin -- grænt framboð og hv. þm. auka erlent fjármagn í íslensku atvinnulífi? Hvað með fiskeldi? Ég veit að hv. þm. er fyrrverandi skólameistari á Hólum. Þeir á Hólum eru sérfræðingar í fiskeldi. Hvað með stóriðju sem talin er geta aukið útflutningstekjur þjóðarinnar? Hafa orðið sinnaskipti hjá Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði? Hvernig vill Vinstri hreyfingin -- grænt framboð auka útflutningstekjur íslensku þjóðarinnar?
Þetta eru spurningar sem mér finnst full ástæða til að hv. þm. svari. Heldur hv. þm. því virkilega fram, eins og mér hefur stundum fundist á þessari ágætu hreyfingu, að tíminn standi kyrr, við búum hér á eylandi og ekkert sé að gerast? Eða lifir hann enn þá í þeim draumaheimi eins og sumir félagar hans, að við getum lifað á fjallagrösum og hundasúru á Íslandi?