Stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða

Miðvikudaginn 09. maí 2001, kl. 18:15:11 (7338)

2001-05-09 18:15:11# 126. lþ. 118.8 fundur 480. mál: #A stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða# frv. 40/2001, PHB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur, 126. lþ.

[18:15]

Pétur H. Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Það er afskaplega algengur misskilningur að halda að ef veð dugar ekki fyrir skuld þá falli skuldin niður. Svo er ekki. Veðið er til tryggingar skuldinni en skuldarinn skuldar skuldina eftir sem áður þó að veðið sé algerlega verðlaust.