Frsm. minni hluta iðnn. (Árni Steinar Jóhannsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Margt af því sem hv. þm. Pétur H. Blöndal benti á hef ég einnig bent á í framsöguræðu minni og umfjöllun um málið en mér þykir miður að hann skuli þá ætla að styðja frv. sem stjórnarmeirihlutamaður. Ég vil spyrja hv. þm. hvort hann geti ekki beitt sér fyrir því hjá stjórnarmeirihlutanum að málefni sveitarfélaganna verði tekin almennt fyrir, skuldastaða þeirra varðandi félagslega íbúðakerfið, það verði ekki hnýtt í þessa sölu. Það er greinilegt að langflestum þingmönnum sem fjalla um þetta mál og hafa efasemdir líkar þessi málatilbúnaður verst. Ég sagði í framsöguræðu minni, og er þar af leiðandi alveg samstiga hv. þm., að ég teldi eðlilegra að vandamál t.d. varðandi félagslega íbúðakerfið yrði leyst með beinum framlögum ríkisins. Mörg sveitarfélög hafa lent í því algerlega ófyrirséð að missa stóran hluta íbúanna frá sér. Ég tek sem dæmi kjördæmi mitt. Hverjum hefði dottið í hug fyrir 10--15 árum að í sveitarfélaginu Hrísey, þar sem var blómleg útgerð, yrði nánast í einu vetfangi lögð niður öll atvinnustarfsemi sem skapaði forsendur fyrir ákvarðanatöku um uppbyggingu? Hverjum hefði dottið í hug að á einu ári mundi slíkt sveitarfélag í kjölfar uppstokkunar í atvinnurekstri og fráflutnings stærsta fyrirtækisins missa frá sér 17% íbúanna? Þetta er algjörlega ófyrirséð og verður ekki skrifað á þá íbúa sem sitja eftir í sveitarfélaginu. Það er þess vegna sem ég tala um að fá heildstæða lausn og er þess vegna samstiga, eins og ég sagði hv. þm., að leysa það mál sér. Síðan koma bollaleggingarnar um hlutafélagavæðingu sér.