Stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða

Miðvikudaginn 09. maí 2001, kl. 18:17:57 (7340)

2001-05-09 18:17:57# 126. lþ. 118.8 fundur 480. mál: #A stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða# frv. 40/2001, PHB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur, 126. lþ.

[18:17]

Pétur H. Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Það er auðvitað atriði hvort ég styðji frv. eða styðji málið. Frv. sjálft er mjög gott, allar greinarnar eru góðar, ég styð það heils hugar. Þegar kemur hins vegar að afgreiðslu fjárlaga, þar sem á að fara að greiða út þetta verð, ef það er rétt og við það verði staðið, þá kann að vera að ég hefði fyrirvara um að samþykkja greiðslurnar ef þær eru of háar.