Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Vel má vera að hv. þm. þyki ég vera einfeldningslegur og hafa einfeldningslegar skoðanir en ég leyfi mér samt sem áður að hafa þær og ég er ekki vanur að leggja svona mat á gáfnafar eða hæfileika annars fólks.
En hann svaraði ekki spurningunni. Hann vill fá ríkisbanka eins og var í eina tíð þar sem stjórnendur hafa ekki hag af því að bankinn hagnist vegna þess að um er að ræða almannafé. En þeir gætu haft hag af því að lána fé ódýrt og það var einmitt það sem hv. þm. sagði að mundi gerast þegar menn væru með eigið fé. Hann snýr hlutunum við. Þegar menn eiga bankann sjálfir þá vilja þeir fá hagnað af honum og þá lána þeir út eins dýrt og þeir geta og helst til óskyldra aðila því þá græða þeir mest. Hv. þm. er að rugla saman við þá stöðu sem var hér í eina tíð þegar bankarnir voru ríkisbankar og fé þeirra var misnotað til útlána, pólitískra útlána sem bankarnir hafa tapað óhemju fé á. (ÖJ: Gætu það ekki hafa verið sjálfstæðismenn sem stjórnuðu því?)