Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég bara felli mig ekki við þetta orðalag, að skýla sér á bak við lög. (Gripið fram í.) Ég er undrandi á að hv. þm. skuli taka svona til orða. Annaðhvort fer maður að lögum eða ekki. Það er í raun fyrir neðan allar hellur að hv. þm. skuli taka sér þessi orð í munn.
Þegar hv. þm. spyr hvort ríkisstjórnin taki ákvarðanir um bankana, kaup og kannski lánveitingar, hver veit hvað, þá er það reyndar svo að samkvæmt hlutafélagalögum hefur ríkisstjórnin ekki heimild til þess þó svo hún vildi. Yfir þessum félögum eru stjórnir sem bera ábyrgð og taka ákvarðanir. Í raun hefur ráðherra ekki mikið vald til að hafa afskipti af þessum stofnunum og þessum félögum á milli aðalfunda. Hins vegar er það hlutverk ráðherra að kjósa bankaráð í viðkomandi félögum. Það eru nú öll afskiptin.
Mér virðist hv. þm. í mikilli vörn í málflutningi sínum. Hann getur ekki rökstutt, að mínu mati, hvers vegna til ætti að vera ríkisbanki, ekki síst eftir að hann hefur gefið þá yfirlýsingu að það eigi ekki að stjórna honum pólitískt.