Mörk Suðvesturkjördæmis og Reykjavíkurkjördæma suður og norður

Föstudaginn 11. maí 2001, kl. 10:51:39 (7483)

2001-05-11 10:51:39# 126. lþ. 120.20 fundur 628. mál: #A mörk Suðvesturkjördæmis og Reykjavíkurkjördæma suður og norður# frv. 62/2001, Frsm. ÞKG
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur, 126. lþ.

[10:51]

Frsm. allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti hv. allshn. á þskj. 1173 í máli 628.

Með frumvarpinu er lagt til að Alþingi samþykki með 2/3 atkvæða að mörk Suðvesturkjördæmis og Reykjavíkurkjördæma suður og norður verði breytt í samræmi við samkomulag Reykjavíkur og Mosfellsbæjar frá 28. febrúar 2001.

Mælir nefndin með því að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.