Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Ég hef í reynd á þessu stigi litlu við að bæta frá því sem kom fram í mínu máli áðan annað en að ég vil taka undir það sem kom fram í máli hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar að við eigum að láta reyna á það í þessu tilviki sem öðrum að túlkun okkar á samningnum þjóni íslenskum hagsmunum. Þess vegna er ég andvígur því að við samþykkjum það frv. sem hér liggur fyrir. Við eigum að halda þessu ákvæði inni í okkar lögum og láta þá á það reyna ef menn vilja draga okkur fyrir dóm Evrópusambandsins til þess að hnekkja íslenskum hagsmunum. Ég er því fylgjandi að við styrkjum og eflum skipasmíðar á Íslandi og að sjálfsögðu eigum við að túlka alla þá samninga sem við höfum undirgengist á alþjóðavísu með þetta í huga.