Vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

Föstudaginn 11. maí 2001, kl. 11:56:56 (7504)

2001-05-11 11:56:56# 126. lþ. 120.23 fundur 669. mál: #A vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.# (bifreiðar til ökukennslu o.fl.) frv. 56/2001, Frsm. VE
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur, 126. lþ.

[11:56]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. vegna frv. til laga um breyting á lögum um vörugjald af ökutækjum. Nefndin fjallaði um þetta mál og sendi það til umsagnar. Þess er getið á þskj. 1213.

Það er skemmst frá því að segja, virðulegi forseti, að nefndin leggur til að frv. verði samþykkt. Öll nefndin stendur að því.