Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég undirstrika þann skilning sem ég hef þegar gert grein fyrir um þetta atriði. Hitt er svo annað mál að auðvitað verður fjallað um þetta bæði í heilbr.- og trn. og í framhaldinu því fjallað um hina almennu launaþróun og hina almennu hækkun á bótum með tengslum við afgreiðslu fjárlaga hverju sinni. Hér er því um sértækar aðgerðir að ræða sem eru stílaðar inn á ákveðna hópa sem hafa minnst í þjóðfélaginu en eins og þingheimur veit er fjallað um hina almennu launaþróun við fjárlagagerð hverju sinni. En eins og ég sagði hefur þetta verið túlkað misjafnlega, almenn launaþróun og laun á almennum vinnumarkaði, en ég er þeirrar skoðunar að það sé eðlilegt í þessu sambandi að miða við laun á almennum vinnumarkaði. Það er túlkun mín á málinu.