Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég tek það fram varðandi þetta að ég mun fara yfir það á næstu vikum hvernig verður staðið að frekari endurskoðun almannatryggingalaga. Þessi endurskoðun hefur staðið yfir svo lengi sem ég man. Ég held að hún hafi staðið yfir í ein 10--15 ár með einhverjum hléum sem ég hirði ekki um að rekja hér. Margar leiðir koma til greina til að taka út einhver ákveðin atriði ef á að halda áfram þessari heildarendurskoðun sem ég er ekki tilbúinn að segja til um á þessari stundu en ég tel nauðsynlegt að halda þessu verki áfram.
Mér þykir leitt ef eitthvað annað hefur verið lesið út úr ummælum mínum en stóð í skýrslunni. Ég gerði mér far um það að kynna þetta lykilfólki sem að mínu mati þyrfti að fjalla um þetta áður en kom til blaðamannafundarins. Ég vona að ef misskilningur hefur átt sér stað hafi hann ekki komið að sök.
Að öðru leyti mun ég koma að öðrum atriðum í ræðu hv. þm. síðar.