Almannatryggingar og félagsleg aðstoð

Föstudaginn 11. maí 2001, kl. 19:23:43 (7607)

2001-05-11 19:23:43# 126. lþ. 120.48 fundur 732. mál: #A almannatryggingar og félagsleg aðstoð# (grunnlífeyrir, tekjutryggingarauki, frítekjumark o.fl.) frv. 93/2001, ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur, 126. lþ.

[19:23]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Það er eitt annað atriði sem ég hefði gjarnan viljað fá svar við ef einhver svör eru við því áður en við ljúkum þessari umræðu, sem er um það bil að ljúka. Það er svar við þeirri spurningu minni sem ég varpaði fram í ræðunni um hvernig hann hyggst vinna að áframhaldandi endurskoðun, hvort það verði sama nefndin, sami hópurinn sem muni vinna að þessu áfram eða hvort hann muni taka einhverja hagsmunaaðila eða einhverja fleiri inn í þá vinnu.