Vinnubrögð við fundarboð

Mánudaginn 14. maí 2001, kl. 10:12:03 (7649)

2001-05-14 10:12:03# 126. lþ. 122.91 fundur 540#B vinnubrögð við fundarboð# (aths. um störf þingsins), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur, 126. lþ.

[10:12]

Forseti (Halldór Blöndal):

Af þessu gefna tilefni vil ég taka fram að formenn þingflokka báðu ekki um fund með forseta Alþingis á laugardaginn. Það gat þess vegna ekki til þess komið að þeir bæru persónulega upp neinar óskir til forseta varðandi þetta sérstaka mál. Þess vegna get ég ekki skilið hvað hv. þm. á við með því að ég hafi með einhverjum hætti brotið samkomulag eða þann samstarfsvilja sem ég hef viljað sýna gagnvart stjórnarandstöðunni.