Afbrigði

Mánudaginn 14. maí 2001, kl. 10:23:35 (7657)

2001-05-14 10:23:35# 126. lþ. 122.95 fundur 544#B afbrigði# (afbrigði við dagskrá), ÖS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur, 126. lþ.

[10:23]

Össur Skarphéðinsson:

Herra forseti. Við í Samfylkingunni teljum að með því frv. sem hér liggur frammi sé ríkisstjórnin að ganga einhliða hagsmuna útgerðamanna. Við getum ekki sætt okkur við það. Við teljum líka að 3. gr. þessa frv. brjóti í bága við ákvæði stjórnarskrár um félagafrelsi. Við getum ekki sætt okkur við það. Þess vegna synjum við afbrigðanna fyrir okkar leyti.