Kjaramál fiskimanna og fleira

Mánudaginn 14. maí 2001, kl. 10:42:28 (7667)

2001-05-14 10:42:28# 126. lþ. 122.1 fundur 737. mál: #A kjaramál fiskimanna og fleira# (breyting ýmissa laga) frv. 34/2001, sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur, 126. lþ.

[10:42]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):

Herra forseti. Ég verð yfirleitt ekki hissa á einu eða neinu sem hv. þm. segir. En í þessum efnum verðum við að skoða hvert mál út af fyrir sig og það samhengi sem það er í og hvaða forsögu það hefur. Það var ég að reyna að útskýra varðandi þau atriði sem koma fram í þessu frv. Önnur atriði verða skoðuð í öðru samhengi og á öðrum tíma.