Ögmundur Jónasson (andsvar):
Hæstv. forseti. Hér var gefin hápólitísk yfirlýsing um að ekki hafi verið samráð milli stjórnarflokkanna um þessa löggjöf. Ég ítreka spurningu mína til hæstv. félmrh., sem er gæslumaður vinnuréttar og samningsréttar innan framkvæmdarvaldsins, hvort hann hafi ekki af því áhyggjur að hér sé sett fram frv. og reynt að þvinga í gegn lög sem stríða gegn alþjóðlegum skuldbindingum Íslendinga, hvort hann hafi ekki af þessu áhyggjur og hvernig hann getur forsvarað það að nú fyrst í dag skuli fara fram athugun á þessu máli í félmrn. Ég lýsi furðu á þessum vinnubrögðum og því ábyrgðarleysi sem hér kemur fram.