Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég spurði hæstv. félmrh. fyrr í dag hvaða meðferð hann héldi að frv., ef að lögum verður, fengi hjá nefnd Alþjóðavinnumálastofnunarinnar ef það yrði samþykkt óbreytt eða eins og það liggur fyrir. Þá vitnaði ég, herra forseti, í Herjólfsmálið sem hæstv. ráðherra vitnaði í líka og sagði að ekki væri líku saman að jafna. En telur ekki ráðherrann að rétt sé að skoða þó það sem nefndin sagði og nú vitna ég beint:
,,Nefndin kemst hins vegar ekki hjá að veita því athygli að orðalag ákvæðis veitir gerðardómnum ekki neinn sveigjanleika til túlkunar. Gerðardómurinn sjálfur viðurkennir þetta þar eð hann bendir á það í úrskurði sínum að þetta ákvæði takmarki mjög frelsi hans til þess að leysa málið.``
Svo segir að nefndin sé með ábendingar um að niðurstaða gerðardóms skuli ekki fyrir fram ákveðin með lögum og að nefndin minni ríkisstjórnina á að til þess að öðlast og halda tiltrú málsaðila sé nauðsynlegt að (Forseti hringir.) hvers konar gerðardómskerfi sé raunverulega sjálfstætt og að niðurstaða gerðardóms skuli ekki fyrir fram ákveðin með lagaákvæðum.