Kjaramál fiskimanna og fleira

Mánudaginn 14. maí 2001, kl. 22:22:04 (7769)

2001-05-14 22:22:04# 126. lþ. 122.1 fundur 737. mál: #A kjaramál fiskimanna og fleira# (breyting ýmissa laga) frv. 34/2001, sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur, 126. lþ.

[22:22]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):

Herra forseti. Sannleikanum verður hver sárreiðastur. Það orkar allt tvímælis þá gjört er. Ég held að það sé rétt að við dæmum löggjöfina þegar hún er endanlega frágengin, þegar við erum búin að fara yfir hana af bestu samvisku hér í þinginu og sjáum þá hvort hún er ekki þannig úr garði gerð að hún leiði til árangurs í að leysa úr þeirri alvarlegu kjaradeilu sem hér hefur verið í gangi.