Beiðni um fundarhlé

Þriðjudaginn 15. maí 2001, kl. 11:46:53 (7815)

2001-05-15 11:46:53# 126. lþ. 123.94 fundur 548#B beiðni um fundarhlé# (um fundarstjórn), BH
[prenta uppsett í dálka] 123. fundur, 126. lþ.

[11:46]

Bryndís Hlöðversdóttir:

Herra forseti. Ég hefði talið æskilegra að á meðan slíkur samráðsfundur ætti sér stað verði gert stutt hlé á fundinum frekar en að taka mál til umræðu sem eru frá iðnn. Sú sem hér stendur er m.a. fulltrúi í iðnn., bara svo að dæmi sé tekið. Ég mundi gjarnan vilja vera viðstödd þá umræðu og ég legg því til að við gerum stutt hlé á fundinum.