Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Ég skal endurtaka þetta. Það er greinilega svolítið erfitt fyrir hv. þm. að skilja þetta einfalda mál.
Annars vegar höfum við gagnrýnt að hin nákvæma forskrift frv. þröngvi öllum sjómönnum undir þann kjarasamning sem vélstjórar hafa gert. Annars vegar er þetta.
Hitt hef ég einnig gagnrýnt að nefnd manna sem þið í stjórnarmeirihlutanum kallið gerðardóm sé fengið vald til að ákvarða kjör sjómanna í einu og öllu, frá a--ö. Ég gagnrýni þetta.
Það eru engar mótsagnir á ferðinni innan stjórnarandstöðunnar. Við erum algerlega sammála þessu.
Eitt ætla ég að biðja hv. þm. Einar K. Guðfinnsson að gera þegar hann kemur næst í ræðustól og lýsir skoðunum sínum á þessu máli. Mig langar til að spyrja hann hvort hann viti hug þeirra sjómanna sem voru hér fyrir utan. Hvaða stafliðum voru þeir sammála? Hverju voru þeir ósammála? Er það rétt ályktun hjá mér að þeir hafi verið ósammála öllum stafliðunum? Og þeir hafi viljað þá alla á brott, á sama hátt og við í stjórnarandstöðunni höfum haldið fram? Við viljum hvern einasta staflið á brott. Við viljum þetta frv. út af borðinu. Við viljum vísa því til föðurhúsanna. Sú er afstaða okkar og þar ríma skoðanir okkar ágætlega saman við sjónarmið sem haldið hefur verið fram að samtökum sjómanna í landinu og sjómönnum vítt og breitt um landið.