Kjaramál fiskimanna og fleira

Þriðjudaginn 15. maí 2001, kl. 18:47:42 (7859)

2001-05-15 18:47:42# 126. lþ. 123.1 fundur 737. mál: #A kjaramál fiskimanna og fleira# (breyting ýmissa laga) frv. 34/2001, PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 123. fundur, 126. lþ.

[18:47]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Hv. þm. geta haft ýmsar skoðanir á þessari lausn til að ljúka verkfalli og verkbanni sjómanna og útgerðarmanna. En ég bið hv. þm. að hafa skilning og samúð með því fólki sem hefur nú verið án atvinnu í nokkrar vikur og eru þolendur þessarar deilu, einnig sjómönnum og mörgum útgerðarmönnum sem eru í vandræðum. Þetta fólk munar um hvern dag. Þess vegna skora ég á hv. þm. að leggjast á árarnar og stuðla að afgreiðslu málsins svo hratt sem auðið er.