Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Alls óskylt því máli sem hér er til umræðu þá langar mig örlítið að drepa á það hvernig hæstv. forseti stýrir þessum fundi. Hann vísaði til ummæla minna frá því í gær og notar það sem tilefni til þess að aga menn hér. Ég sagði ekkert í gær sem gæti gefið honum tilefni til þess. Hins vegar má vera að ég hafi sagt eitthvað á laugardag sem féll í þessa veru. En til að taka af allan vafa, herra forseti, þá var ég ekki í ummælum mínum á laugardag að vanda um við hæstv. forseta með því að halda því fram að hann bæri ekki rétt skyn á það hvenær menn héldu sig við efni, þ.e. um fundarstjórna forseta, eða ekki. Ég treysti hæstv. forseta fullkomlega til að vega það og meta hvort menn fara út fyrir eða inn fyrir það efni.
Það sem ég var hins vegar að kvarta um við hæstv. forseta, og sem mér finnst ærið tilefni til á stundum, var að mér finnst hæstv. forseti ekki útdeila réttlæti sínu jafnt á stjórn og stjórnarandstöðu þegar hann leggur þetta mat á mál manna. Það var það sem ég var að segja hér á laugardaginn og því vil ég halda til haga, til þess að hæstv. forseti snúi ekki út úr orðum mínum og noti það til þess að tyfta menn.