Kjaramál fiskimanna og fleira

Miðvikudaginn 16. maí 2001, kl. 14:49:22 (7903)

2001-05-16 14:49:22# 126. lþ. 125.1 fundur 737. mál: #A kjaramál fiskimanna og fleira# (breyting ýmissa laga) frv. 34/2001, Frsm. meiri hluta EKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur, 126. lþ.

[14:49]

Frsm. meiri hluta sjútvn. (Einar K. Guðfinnsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það kemur skýrt fram í frhnál. meiri hlutans að við höfum átt viðræður við Landssamband ísl. útvegsmanna. Þeir hafa komið tvívegis á fund nefndarinnar og ekkert hefur komið fram um annað en að þeir hyggist halda áfram verkbanni sínu og það er önnur forsendan fyrir því að þessi lagasetning er í bígerð.