Almennar stjórnmálaumræður (útvarpsumræður)

Miðvikudaginn 16. maí 2001, kl. 20:01:00 (7937)

2001-05-16 20:01:00# 126. lþ. 126.1 fundur 551#B almennar stjórnmálaumræður (útvarpsumræður)#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 126. fundur, 126. lþ.

[20:01]

Forseti (Halldór Blöndal):

Umræðurnar fara þannig fram að hver þingflokkur fær 22 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir, tíu mínútur í fyrstu umferð og sex mínútur í annarri og síðustu umferð.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn. Ræðumenn flokkanna verða:

Fyrir Samfylkingu tala í fyrstu umferð Bryndís Hlöðversdóttir, 9. þm. Reykv., í annarri umferð Gísli S. Einarsson, 5. þm. Vesturl., en í þriðju umferð talar Rannveig Guðmundsdóttir, 4. þm. Reykn.

Fyrir Sjálfstæðisflokk tala í fyrstu umferð Árni M. Mathiesen sjútvrh., í annarri Arnbjörg Sveinsdóttir, 2. þm. Austurl., en í þeirri þriðju Vilhjálmur Egilsson, 4. þm. Norðurl. v.

Ræðumenn Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs verða í fyrstu umferð Ögmundur Jónasson, 13. þm. Reykv., í annarri umferð Þuríður Backman, 5. þm. Austurl., en Árni Steinar Jóhannsson, 6. þm. Norðurl. e., í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk tala Halldór Ásgrímsson utanrrh. í fyrstu umferð, í annarri Guðni Ágústsson landbrh., en í þriðju umferð Ísólfur Gylfi Pálmason, 5. þm. Suðurl.

Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrstu umferð Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykv., en Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestf., í annarri umferð og í hinni þriðju.