Sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.

Fimmtudaginn 17. maí 2001, kl. 21:24:11 (8043)

2001-05-17 21:24:11# 126. lþ. 127.1 fundur 707. mál: #A sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.# frv. 75/2001, 708. mál: #A fjarskipti# (skilyrði rekstrarleyfis) frv. 72/2001, ÞKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur, 126. lþ.

[21:24]

Þorgerður K. Gunnarsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ýmis þörf mál eru þá rædd á árshátíðum Símans því það kom alveg skýrt fram í máli þessara fulltrúa að eitt af þeirra áhersluatriðum væri að þeim væri tryggður kaupréttur að hlutabréfum, að þeir gætu komið að því að kaupa hlutabréf í Símanum. Það er meðal annarra atriða sem komu skýrt fram. Mjög mikilvæg atriði komu fram hjá þessum fulltrúum og ekki bara um það hvenær og hvernig árshátíðir eru haldnar.