Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég tel að hv. þm. oftúlki orð mín dálítið og kannski annarra líka. Auðvitað er enginn að tala um gjafaprís, hv. þm. Auðvitað mun ríkisstjórnin gæta hagsmuna þjóðarinnar og auðvitað verður tekið tillit til aðstæðna, t.d. ástandsins á markaðnum. Þess vegna er ekki hægt að fullyrða neitt um það á þessari stundu hvernig verði farið í sölu á bönkunum. Sama er að segja um Landssímann. Það þarf að taka tillit til margra þátta.
Það sem beðið er um hér á hv. Alþingi er heimild Alþingis til að fara í þessa sölu. (ÖJ: SR-mjöl.) Ég ætla að biðja hv. þm. að tala ekkert um SR-mjöl. Það er sala sem átti sér stað þegar ég kom hvergi nærri völdum í þessu samfélagi. (ÖJ: Áburðarverksmiðjan.) Áburðarverksmiðjan var seld á býsna góðu verði. (ÖJ: Nei.) (Gripið fram í: Jú.) Við skulum ekki fara hér í tveggja manna tal.
(Forseti (ÍGP): Ég ætla að biðja hv. þm. um að gæta stillingar í salnum.)
Ég lýsi ánægju minni með að mér finnst hv. þm. Ögmundur Jónasson vera kominn niður á jörðina í þessari umræðu og sé að átta sig á því að það er kannski ekkert svo vitlaust að selja þessi fyrirtæki, ekki síst þegar það er nú komið í ljós --- kannski á ekki að ræða það núna --- en það kemur í ljós í þeirri skýrslu sem verður dreift til þingmanna í dag að ríkið hefur mjög verið að stækka eignarhlut sinn í íslensku atvinnulífi. Ég held að þess vegna sé alveg rétti tíminn að drífa sig í að selja.