Sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.

Föstudaginn 18. maí 2001, kl. 20:06:44 (8183)

2001-05-18 20:06:44# 126. lþ. 128.1 fundur 707. mál: #A sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.# frv. 75/2001, LB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur, 126. lþ.

[20:06]

Lúðvík Bergvinsson:

Virðulegi forseti. Að felldri tillögu um að gera þá lágmarksbreytingu að skilja grunnnetið frá treystum við í Samfylkingunni okkur ekki til þess að styðja þetta mál.

Þrátt fyrir að við teljum að ríkið eigi að draga sig út úr samkeppnisrekstri treystum við okkur ekki til að styðja þetta mál. Við teljum að hér sé verið að breyta ríkiseinokun í einkaeinokun. Það getum við ekki stutt.