Skýrsla um stjórnunar- og eignatengsl í íslensku atvinnulífi

Föstudaginn 18. maí 2001, kl. 20:36:53 (8194)

2001-05-18 20:36:53# 126. lþ. 128.92 fundur 587#B skýrsla um stjórnunar- og eignatengsl í íslensku atvinnulífi# (um fundarstjórn), viðskrh.
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur, 126. lþ.

[20:36]

Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég tel rétt að biðjast afsökunar á því að þessi skýrsla skuli ekki vera komin í hendur þingmanna því það var ætlan mín að svo væri um þetta leyti sólarhrings. Reyndar trúði ég því að það gæti gerst um hádegi. En þetta er mikil bók að vöxtum og einfaldlega hefur tafist að koma henni úr prentsmiðju. En ég hef verið mjög lipur og liðleg við hv. þingmenn í dag og hef lánað þeim mína bók eins þeir hafa óskað eftir. En svona stendur málið.

Ég vonast til þess að skýrslan verði komin áður en þessum fundi lýkur.

(Forseti (HBl): Það er nú hægt að halda fundinum áfram.)