Árni Steinar Jóhannsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég frábið mér svona lágkúrulega útúrsnúninga og hártoganir. Ég gerði fulla grein fyrir því varðandi þessa 90 megavatta stöð að þetta er tvíþætt. Hv. þm. ætti að vita það sem höfuðborgarbúi að hér er um að ræða framleiðslu á 90 megavatta afli í raforku. En það er líka um að ræða 200 megavatta afl í hitaorku. Það er ekki bæði hægt að hafa mjöl í kjaftinum og blása.
Fyrirvarinn er sá að raforkuhlutinn, 30 megavatta stækkunin, fer í að fóðra álver. En það þarf hitaorku á höfuðborgarsvæðið. Ef ég tala ekki nógu skýrt þá er ég tilbúinn að tala í alla nótt um þetta mál. Hv. þm. Össur Skarphéðinsson ætti að vita að orkuverið á Nesjavöllum er tvíþætt. Það býr til varmaorku fyrir höfuðborgina og það býr til rafmagn. Segja má að rafmagnið sé aukastærðin og varmaorkan aðalmálið. Rafmagnið er bónusinn. Eitt leiðir af öðru. Og að samþykkja ekki að fara í þessa vistvænu orkuöflun þýðir þá líka að það á að stöðva að dæla upp heitu vatni til þess að kynda húsin í borginni.
Ég er á móti raforkusölunni til mengandi stóriðju. En það er ekki hægt, eins og ég sagði áðan, bæði að hafa mjöl í kjaftinum og blása því að þetta hangir hvort tveggja saman og það vita allir hér.