Þróunarsjóður sjávarútvegsins

Laugardaginn 19. maí 2001, kl. 10:28:25 (8278)

2001-05-19 10:28:25# 126. lþ. 129.48 fundur 735. mál: #A Þróunarsjóður sjávarútvegsins# (gjald á aflaheimildir) frv., sjútvrh.
[prenta uppsett í dálka] 129. fundur, 126. lþ.

[10:28]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen):

Herra forseti. Þetta er eðlileg spurning hjá hv. þm. Ég hefði gjarnan viljað að mál þetta kæmist áfram og yrði samþykkt. Ef ekki, þá er út af fyrir sig enginn stór skaði skeður annar en sá að Þróunarsjóður sjávarútvegsins verður af 40 millj. kr. tekjum. Menn verða bara að meta það í samhengi við það hvernig þingstörfin ganga hvaða hátt menn vilja hafa á þessu. En það er út af fyrir sig ekki meira í húfi en 40 millj. kr. fyrir Þróunarsjóðinn.