Almannatryggingar og félagsleg aðstoð

Laugardaginn 19. maí 2001, kl. 15:59:24 (8355)

2001-05-19 15:59:24# 126. lþ. 129.38 fundur 732. mál: #A almannatryggingar og félagsleg aðstoð# (grunnlífeyrir, tekjutryggingarauki, frítekjumark o.fl.) frv. 93/2001, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 129. fundur, 126. lþ.

[15:59]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Í skýrslunni sem liggur til grundvallar frv. sem hér er til afgreiðslu er fjallað um þessi mál. Þar er látið í ljós það álit að þessi samanburður eigi að miða við laun á almennum vinnumarkaði. Það álit hef ég gert að mínu og er sammála því áliti og gerði grein fyrir því í umræðunni þegar málið var til 1. umr.